hraustari, heilbrigðari, hamingjusamari

Maður er það sem maður borðar!

28.07.2007 10:14:41 / hraustari

DDV- lausir dagar

Það er búið að vera svo ótrúlega mikið að gera hjá mér undanfarið að ég hef bara ekkert getað bloggað hérna... mér þykir það hálfsúrt því eins og ég hef áður sagt finnst mér rosalegur stuðningur í að blogga. En eftir 1. ágúst mun ég ekki blogga í margar vikur og þá verður matardagbókin og litla stuðningsbókin mín bara að duga :)

Nýja planið er að ganga ágætlega. Ég er ekki alveg búin að venjast því en er öll að koma til og verð örugglega farin að gera þetta án þess að hugsa mig um eftir nokkra daga. Gærdagurinn var t.d. svona:

MM: 1/2 gróf brauðsneið með smjörva og osti, 1/2 rúgbrauðsneið með smjörva og reyktum silung, 1 glas appelsínusafi

Milli mála: DDV-íspinni, nokkur vínber

HM:  1/2 mozzarellafyllt paprika, 1 gróf brauðsneið með kotasælu, 2 gulrætur

KM: Réttur dagsins á Grænum Kosti (aðallega grænmeti, baunir og hnetur, sleppti hrísgrjónum og brauði)

Kvöldkaffi: nokkur cheerios, 1 DDV íspinni

Drakk 1,25 l af vatni 

Það sem ég sé að þessum degi er í fyrsta lagi skortur á ávöxtum, í öðru lagi er of mikil fita, í þriðja lagi er cheerios ekki í lagi á milli mála og í fjórða lagi drakk ég ekkert sérstaklega mikið vatn. Ég var alveg ísóð allan daginn og eiginlega þurfti ég að bremsa mig af til þess að borða ekki FLEIRI íspinna...hahaha...en ég kláraði þá og nú ætla ég að taka mér smá pásu frá þeim. Jógúrt og AB-mjólk með ávöxtum verður að duga á næstunni :D

Ég vona að ykkur gangi öllum vel, endilega komið með athugasemdir eða góðar hugmyndir í sambandi við nýja systemið mitt (er ekki alveg viss um að það sé nógu gott)

Sælar að sinni!  


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 22:18:07 / hraustari

Staðan í dag

Jæja. Í dag var sem sagt síðasti DDV-dagurinn minn í bili. Ég fór í vigtun og á fund í hádeginu og ætlaði ekki að trúa eigin eyrum þegar hún tilkynnti mér árangur vikunnar: 1,2 kg fokin! Sem er alveg helmingi meira en ég ætlaði mér... ég er alveg í skýjunum af ánægju og stolti! :D Ég er semsagt búin að losa mig við 2,3 kg alls á þremur vikum :D Renndi í gegnum bloggin hjá ykkur hinum og sá að ykkur gengur líka vel - til hamingju stelpur!

En ég ætla sko EKKI að éta þennan góða árangur í burt... ekki sjéns! Í dag tók við nýtt plan hjá mér, það er svona:

* Þrjár máltíðir á dag. Einu sinni á diskinn, þar af 2/3 grænmeti. (nema í morgunmat, ávöxtur í staðinn)

* Ekkert brauð eftir hádegismat

* Ávextir, sykurlaust gos eða létt-mjólkurvörur (í hófi!!!) milli mála

* Eins mikið vatn og hægt er

* Skrifa í matardagbók á hverjum degi

Þetta finnst mér ágætt plan og held að það verði ekki erfitt að halda mér við það. Dagurinn í dag gekk allavega vel og ég er hrikalega einbeitt - ég ætla ekki að þyngjast um gramm á næstu vikum!

Óska ykkur gæfu og gengis ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 23:14:13 / hraustari

Stórfréttir!

Gærdagurinn gekk alveg stórvel hjá mér, hann var fullkominn að öðru leyti en því að ég misreiknaði mig aðeins og fékk mér einn teskeið of mikið af fitu... en það er nú ekki stórglæpur og ég læt það ekki mikið á mig fá :) Held áfram ótrauð! Prófaði að gera franskar úr sellerírót og kokteilsósu með og það var ÆÐI. Miklu betra en venjulega franskar! Ætla á morgun að gera franskar úr rófu og sjá hvernig það bragðast. Smakkaði líka gulrótarkonfektið sem er vægast sagt ljúffengt. Mmmm...sannkallað nammi ;)

Dagurinn í dag var 100% (held ég, leiðréttið mig endilega ef mér yfirsést eitthvað)

Matur dagsins:

MM: 30 g cheerios, 1,25 dl AB-mjólk, 1.5 dl ferskur appelsínusafi

HM: 60 g gróft brauð, 1 tsk smyrja, 50 g feitur ostur, 50 g gúrka, 250 g kokteiltómatar

Milli mála: 8 stk gulrótarkonfekt

KM: Nings réttur: 170 g baunir, 300 g grænmeti, 0.5 l coke light

Kvöldkaffi: 1,25 dl AB-mjólk, 100 g hindber, 2 tsk smyrja, 1/2 epli, 1/2 appelsína

Drakk allt vatnið.

Í gær fékk ég svo þær fréttir að ég fékk starf sem ég hef verið að sækjast eftir í allt sumar. Vinnan er úti á landi, á mjög afskekktum stað, þar sem er ekki nein matvöruverslun eða sjoppa eða rennandi vatn eða neitt. Ég mun koma til með að borða í mötuneyti, sem þýðir að ég ræð náttúrulega ekki sjálf hvað er boðið upp á. Þannig að frá og með næsta mánudegi og fram í lok ágúst (þegar verkefninu lýkur) sé ég ekki fram á að geta sinnt DDV. Ég ætla samt að halda þeim árangri sem ég hef þegar náð með því að drekka eins mikið vatn og ég get, fá mér bara einu sinni á diskinn, ekki borða brauð eftir hádegismat, sleppa öllu sykurgotteríi, og neyta áfengis í miklu hófi. Ég ætla líka að hreyfa mig eftir bestu getu. Ég er svolítið kvíðin að þurfa að sleppa hendinni af DDV-prógramminu þegar ég er svona nýbyrjuð og komin á gott skrið en ég er líka STAÐRÁÐIN í að gera mitt allra besta til að halda mér við efnið. Ætla að halda matardagbók og vera áfram einbeitt og jákvæð!

Þar sem ég verð er ekkert netsamband svo þetta blogg verður í pásu á meðan... en svo sný ég aftur eftir mánuð og held áfram í DDV - það er alveg á hreinu :D

Bestu kveðjur!


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 02:34:17 / hraustari

Kökukvöld

Átti alveg frábæran dag í dag, var bara heima að lesa Harry Potter í ró og næði þar sem kærastinn er úti á landi :) Svo vorum við taka3 búnar að ákveða að hafa kökukvöld og hittumst heima hjá henni, bjuggum til gulrótarkonfekt og meðan það var í ofninum fengum við okkur DDV-eplaböku með DDV-vanilluís (mmmm ekkert smá gott!) og horfðum á vídjó. Frábært kvöld, og nú á ég líka gulrótarkonfekt inni í frysti ef ég skyldi þurfa að grípa til slíks á næstunni!

Mér finnst rosalega gott að skrifa matseðla dagsins niður hérna á blogginu, það getur verið mikil hjálp á ögurstundum að hugsa: "Nei! Hvað myndu DDV-stelpurnar segja um þetta?!" Veitir bara svo mikið aðhald. Finnst líka svo mikill stuðningur í kommentunum ykkar... takk fyrir þau elskurnar ;)

Matur dagsins:

MM: 30 g brauð, 25 g feitur ostur, 1.5 dl ferskur appelsínusafi

HM: 300 g tómatar, 100 g fetaostur, 30 g brauð, 50 g kotasæla, 1/2 banani

Milli mála: 125 g jarðaber, 20 g vínber

KM: 120 g túnfiskur, 100 g gúrka, 100 g tómatur

Kvöldkaffi: 100 g tómatur, 1 epli, 1,5 tsk hveiti, smá undanrennuduft, 2.5 tsk majones, 3 tsk sykurlaus ferskjusulta, 62,5 g DDV-ís, 437 ml fjörmjólk

Drakk 3 lítra af vatni alls - vona að það sé ekki skaðlegt heilsunni (las einhver staðar grein um ofdrykkju vatns og skaðsemi hennar...) :)

Hafiði það gott!


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 12:44:35 / hraustari

Jákvæðnin

Var að lesa bloggið hennar Heidiar þar sem hún talar um hugarþjálfun og mikilvægi hennar. Ég er 100% sammála og nota þetta mikið sjálf. Ég á m.a.s. litla bók þar sem ég skrifa niður hvetjandi orð og teikna myndir af mér þegar ég hef náð markmiðum mínum :) Hljómar kannski kjánalega en virkar fyrir mig; ég er alltaf miklu einbeittari þegar ég hef kíkt svolítið í þessa bók.

Annað sem ég er viss um að sé mikilvægt er jákvæðnin. Að reyna að finna jákvæðu hliðina á öllu og hafa gaman að þessu. Í bókinni minni er ég búin að búa til lista yfir alla kosti þess að vera í DDV og ef ég er í fýlu við matardagbókina eða eitthvað (:$) þá bara renni ég yfir listann og finn yfirleitt eitthvað til að brosa yfir. Listinn er svona:

Mér finnst gott að vera í DDV vegna þess að:

* Úr fæðunni fæ ég ótrúlega mikið af vítamínum og þ.a.l. betri húð, betra heilsufar og meiri orku

* Ég er nánast aldrei svöng

* Ég veit að ég er að vinna að markmiðum mínum og er þess vegna stolt af mér

* Ég kynnist nýjum og hollari uppskriftum og er miklu duglegri að elda heima hjá mér

* Mér er aldrei illt í maganum eftir sukkát eins og áður

* Það er mjög gaman að versla í matinn; allt svo heilnæmt og litríkt í körfunni

* Ég má borða svo góðan mat: osta, ber, dijon-sinnep, lax, skyr, gróft brauð, ferskan appelsínusafa, DDV- gotterí og fleira og fleira

Meira að segja núna verð ég rosalega jákvæð bara af því að skrifa upp listann! Hahahaha

Bestu kveðjur! :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 20:20:31 / hraustari

Nammilöngun

Ég þjáðist af svo mikilli nammilöngun í dag að ég hélt ég væri að missa vitið! Sem er svolítið skrýtið því nú er ég búin að vera í DDV í tvær vikur og hef ekki verið neitt sérstaklega veik fyrir nammi; reyndar hef ég ekki bragðað neitt svoleiðis allan tímann, nema þá DDV ísinn... Ég stóðst samt freistinguna í dag og er rosalega fegin núna. Sit bara með skál af jógúrt með bananabitum - sem er sko bæði hollt og gott :D

Matur dagsins:

MM: 30 g brauð, 1 tsk smyrja, 25 g camenbert, 1 tsk sykurlaus hindberjasulta, 1.5 dl ferskur appelsínusafi

HM: 30 g brauð, 150 g kotasæla, 125 g tómatur, 100 g gúrka, salatblað, 62.5 g DDV-ís, 1.5 tsk DDV-kakó, 1.5 tsk undanrennuduft

Milli mála: 100 g gulrætur, 125 g vínber

KM: 300 g paprikur, 200 g baunir, 1.5 tsk ólífuolía, 1/2 dl sýrður rjómi, 1.85 dl hrein jógúrt, 1/2 banani

Kvöldkaffi: 125 g vínber

Drakk allt vatnið.

Ég setti inn tvær uppskriftir sem ég hef búið til á síðustu tveim vikum. Þetta er voðalega einfalt hjá mér en mér finnst það allavega mjög bragðgott! Set inn fleiri svona með tímanum...

Baráttukveðjur ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 20:14:03 / hraustari

Gleði, gleði, gleði

Vigtun dagsins sýndi að ég hef misst 500 g í þessari viku. Ég er MJÖG ánægð, enda markmiðið hjá mér að missa 400-600 g á viku þannig að þetta er alveg samkvæmt áætlun. Sé mig fyrir mér að draga heilt smjörlíkisstykki upp úr gallabuxunum - hahahahaha! Hljóta nú að víkka smá við það!

Ákvað að verðlaun vikunnar væri DDV-kakó og undanrennuduft svo ég geti búið til meira gotterí. Ætla að fá mér DDV-ís með heitri súkkulaðisósu og ferskum brómberjum á eftir og vera svolítið ánægð með mig :D

FRÁBÆRT að heyra hvað ykkur gengur öllum vel, stelpur! Bestu kveðjur!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 01:04:47 / hraustari

Og hraust á ný!

Jæja, þá er þessi slappleiki á undanhaldi og ég öll að koma til :) Ég trúi nú ekki öðru en að allt magnið af ávöxtum og grænmeti og grófu brauði (og hvítlauk) sem ég er búin að troða í mig hafi sitt að segja!

Er búin að eiga rólegan dag heima við og slappa vel af. Ætla svo bara í vinnu og vigtun á morgun og er orðin frekar spennt að sjá tölu vikunnar.

Matur dagsins:

MM: 1,5 dl AB-mjólk, 1/2 banani, 30 g hafragrjón, 1 tsk smyrja, 2 tsk sykurlaus hindberjasulta

HM: 60 g gróft brauð, 100 g túnfiskur í dós, 2 tsk majones, 1 dl sýrður rjómi 10%, 1 tsk dijon sinnep, 250 g kirsuberjatómatar

KM: Nings-bakki: 170 g kjúklingabaunir, 300 g grænmeti

Kvöldkaffi: Ávaxtasalat: 1/2 banani, 125 g vínber, 1 epli

Drakk allt vatnið.

Þegar ég lít yfir vikuna mína er ég nokkuð ánægð, er búin að standa mig með sóma að undanskildum laugardeginum sem var næstum vigtunar- og grænmetislaus. Mér finnst líka ekki gott að hafa tvisvar farið á Nings, vil bara gera það einu sinni í viku til að halda fjölbreytninni og ætla að passa það héðanaf.

Gangi öllum vel á morgun! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 22:04:08 / hraustari

Lasin :(

Búin að vera rosalega slöpp í allan dag, komin með hita og smá ógleði...vona bara að þetta fari sem fyrst. Nenni sko ekki að vera lasin!

Matur dagsins:

MM: 30 g gróft brauð, 2 tsk sykurlaus hindberjasulta, 30 g cheerios, 1,5 dl appelsínusafi

HM: 30 g gróft brauð, 50 g graflax, 75 g kotasæla, 2 tsk dijon sinnep, 300 g ferskir tómatar og gulrætur

Milli mála: 1 banani og 0,5 l coke light

KM: 300 g ferskt sellerí, gúrkur og gulrætur, hummus: 200 g kjúklingabaunir, 1 dl AB-mjólk, 3 tsk ólífuolía

Kvöldsnarl: 100 g hindber með 1,5 dl létt vanillujógúrt

Drakk allt vatnið.

Bestu kveðjur til allra... :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 21:58:39 / hraustari

Skin og skúrir

Í gær fórum við kærastinn í bíltúr sem endaði óvænt uppi í bústað hjá kunningjum okkar og svo vorum við þar alveg fram á kvöld. Ég semsagt vigtaði bara með augunum og reyndi að borða sem hollast, sleppti öllu nammi og snakki og ís (sem var samt NÓG af, ótrúlegt hvað fólk á það til að kaupa mikla óhollustu þegar á að "hafa það gott", eins og hollusta sé ekki góð?!)

En þó að dagurinn í gær hafi verið hálfskrýtinn skiptast á skin og skúrir og í dag gekk mér mjög vel. Fékk svakalega íslöngun um miðjan dag en fór þá bara heim og fékk mér DDV-ís með heitri hindberjasósu....mmm...;)

Matur dagsins:

MM: 30 g gróft hrökkbrauð, 1 tsk smyrja, 2 tsk sykurlaus hindberjasulta, 25 g camenbert, 1 lítil appelsína

HM: 2 spælegg, 1 tsk olía til steikingar, 30 g gróft hrökkbrauð, 100 g gúrka, 200 g tómatar, 1 tsk ólíuolía

Milli mála: 125 g DDV-ís, 100 g hindber, smá sætuefni

KM: 130 g grilluð, lime-maríneruð lúða, 30 g grillaður laukur, 75 g grillaðar gulrætur, 100 g tómatar, 100 g sellerí

Kvöldkaffi: 125 g jarðarber, 1 lítil appelsína, 3,75 dl fjörmjólk

Drakk líka allt vatnið.

Annars er fátt í fréttum...vil nota hérna tækifærið og hrósa Heidi fyrir að setja inn allar þessar uppskriftir, ég er búin að lesa yfir þær og það eru a.m.k. tíu sem mig langar að prófa! Gerir aðhaldið skemmtilegra! :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 22:39:56 / hraustari

Slakur dagur

Matur dagsins:

MM: 30 g cheerios, 2,5 dl AB-mjólk, 1,5 dl hreinn appelsínusafi

HM: 2 litlar pizzusneiðar með sósu og osti, 0,5 l coke light, 250 g kokteiltómatar, 50 g brokkolí

Milli mála: 1 epli, 1 lítil appelsína, 1 lítill bjór

KM: Nings bakki: 120 g kjúklingabaunir, 300 g grænmeti

Kvöldkaffi: 1 bakað epli með 3 tsk smyrju

Drakk líka allt vatnið.

Ok. Ég vissi af þessari pizzu í gærkvöldi og málið er að ég vinn með 14 ára unglingsstúlkum sem líta á mig sem fyrirmynd og ég þori ekki alveg að segja þeim að ég vilji ekki pizzu því ég sé í megrun. Ég er fullorðin og hef stjórn á megruninni minni, en þær eru bara krakkar og ef þær færu að taka upp á því að herma eftir mér og fara í megrun er allt eins víst að það færi úr böndunum. Þannig að ég tók meðvitaða ákvörðun um að borða tvær litlar pizzusneiðar og skrifa sem brauð, ost og tómatsósu-skammt dagsins.

Bjórinn var freisting sem ég stóðst ekki. Það er svo erfitt að sleppa alveg áfengi þegar maður er ungur og það er sumar...einhvern veginn partý um hverja helgi og allir að drekka... ég finn allavega mest fyrir að vera veik fyrir þegar kemur að því að afþakka eitt rauðvínsglas með matnum eða einn bjór á kaffihúsi. Verð að passa mig á þessu... :S

Ekki svo góður dagur hjá mér, en geri bara betur á morgun...


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 21:12:46 / hraustari

Í dag

Ég var eitthvað svo þreytt og morgunfúl þegar ég vaknaði í morgun að mig langaði mest að hrækja á matardagbókina, gefa skít í allt saman og detta í það í bakaríinu. Sem betur fer lét ég það ekki eftir mér... þá fyndist mér líklega ekki jafn skondið að segja frá þessu núna! :|

Matur dagsins:

MM: 30 g brauð, 1 tsk smyrja, 25 g feitur ostur, 1/2 banani, 1,5 dl AB-mjólk

HM: 300 g hrátt grænmeti (tómatar, gulrætur, rófur), 1 vanillluskyrdrykkur, 30 g brauð

Milli mála: 1/2 banani

KM: 170 g grillaður silungur, 300 g ferskt grænmeti (sellerí og gúrka), 50 g steikt brokkolí, 1/4 dl sýrður rjómi 10%, 1 tsk ólífuolía, 1, 5 dl hreinn appelsínusafi

Kvöldsnarl: 125 g DDV ís, 100 g hindber, smá sætuefni

Drakk líka allt vatnið.

Hvernig er það, er þetta 100% dagur? Eða er ég að misskilja eða misreikna eitthvað? Endilega kommentið...

Baráttukveðjur, þið eruð allar að standa ykkur eins og hetjur!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 00:09:13 / hraustari

Vigtun!

Ég steig á vigtina í Garðabæ í dag og viti menn! 600 g farin! Kannski ekki hæsta talan í heiminum en samt, rúmlega eitt smjörlíkisstykki...ekki slæmt að losna við það! Ég var búin að ákveða að verðlauna sjálfa mig ef ég héldi út fyrstu vikuna og næði að léttast, þannig að ég keypti mér sætuefni svo ég geti búið til DDV-gotterí af og til. Maður á það nú alveg skilið stundum ;)

Sat samt ekki fundinn vegna þess að ég var búin að bóka stefnumót við vinkonu mína í ræktinni... púlaði sko í einn og hálfan klukkutíma og leið frábærlega á eftir. Var reyndar hálfsvekkt að komast ekki á fundinn en fer þá bara næst.

Var svo að koma úr bíói og var næstum því búin að svindla. Ég hugsaði "Þegar maður fer í bíó þá MÁ maður fá sér popp og djúpur og lakkrís og..." en svo ákvað ég að það væri vitleysa. Það er alveg nógu gaman í bíó þó maður sé ekki að éta sykur og fitu á meðan. Svo ég fékk mér bara coke light og var stolt af mér!

Gaman að heyra að öllum gekk vel, hafiði það gott elskurnar! :D 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 20:23:46 / hraustari

Vellíðan

Þetta er búinn að vera fínn dagur hjá mér, ekki alveg 100% þar sem ég gleymdi prótín-hlutanum í morgunmatnum (fékk mér bara brauð með viðbiti og sultu og appelsínusafa) en annars alveg fullkominn. Svo er bara vigtun á morgun...verð að viðurkenna að ég er orðin doldið spennt að sjá hvernig það heppnast hjá mér;)

Ég áttaði mig allt í einu á því í morgun að ég er ekki búin að borða neitt nammi eða snakk eða kökur eða ís eða neitt í heila viku! Sem er alveg ótrúlegt! Ein stærsta ástæðan fyrir að ég ákvað að skellla mér í þetta átak var að mig langaði svo að fara að borða hollara - og léttast náttúrulega aðeins um leið. Svona VAR týpískur matardagur hjá mér fyrir tveimur vikum síðan:

Morgunmatur: Ekkert

Milli mála: Kók

Hádegismatur: Sómasamloka, kannski smá nammi

Milli mála: Ís, nammi eða kex

Kvöldmatur: Skyndibiti eða a.m.k. ALDREI eldað heima

Kvöldkaffi: Snakk

Kannast einhver við svona???

Ég veit ekki hvað oft ég hef reynt að hætta að borða nammi, taka með mér hollt nesti o.frv. en er yfirleitt búin að koxa á því áður en dagurinn er liðinn... Í DDV er bara svo mikil hvatning og aðhald, maður bara VERÐUR að standa sig og mann langar líka til þess! Ég er allavega mjög ánægð so far, finnst ég hafa miklu meiri orku og svo er líka svo gaman að kaupa inn, allt svo hollt og litríkt og bara fallegt eitthvað. Kannski léttist ég ekkert í þessari viku en so what? Mér líður miklu betur með sjálfa mig og það sem ég er að borða!

Gangi okkur öllum vel í vigtun á morgun :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 21:28:32 / hraustari

Smá stress

Sko ég veit ekki alveg af hverju en allt í einu er ég alveg rosalega stressuð um að ég sé að gera þetta allt vitlaust...er eitthvað svo södd...svo finnst mér einhvernveginn hafa gengið lygilega vel, held að ég hljóti að vera að misskilja hlutina eitthvað og þegar ég fari í vigtun muni ég bara hafa þyngst af öllum þessum mat...líður einhverjum öðrum svona? :S

Ég ætla að setja hérna inn það sem ég borðaði í dag, endilega kommentið ef eitthvað er ekki eins og það á að vera:

Morgunmatur: 30 g gróft brauð, 25 g feitur ostur, 1,5 dl hreinn appelsínusafi

Milli mála: 1 epli

Hádegismatur: 300 g grillaður kúrbítur með 2 tsk ólífuolíu og 100 g fetaosti, 30 g brauð með 50 g kotasælu

Milli mála: 2 lítil glös coke light

Kvöldmatur: 300 g bakaðar rófur, gulrætur og sætar kartöflur, 150 grilluð, sítrónumaríneruð lúða, sósa úr 0,5 dl hreinni jógúrt, 0,5 dl sýrðum rjóma og pressuðum hvítlauk, 1 tsk ólífuolía

Kvöldsnarl: 150 g jarðarber, 100 g hindber, 3 dl fjörmjólkglas

Vatn: 8 glös

Dreif mig líka í ræktina og skokkaði í 30 mín, verð aðeins að fara að taka á því ef 10 kílómetrarnir eiga að hafast! Úff...

Eitt enn. Lenti í ÓVÆNTRI PIZZUVEISLU í dag, stærsta óvini DDV-manneskjunnar. Slapp einhvernveginn bara með coke light og er alveg rosalega fegin...


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2