hraustari, heilbrigðari, hamingjusamari

Maður er það sem maður borðar!

13.2.2008 05:14:37 / hraustari

Sitthvað um mig

Ég er ung kona í Reykjavík og bý með yndislega kærastanum mínum og hundinum okkar í Vesturbænum. :) Ég er dugleg að hreyfa mig því mér finnst það gaman en því miður finnst mér jafn gaman að borða og hef aðeins of litla stjórn á því! Hef verið að bæta á mig jafnt og þétt og langar að taka í taumana áður en það verður enn erfiðara. :)

Mig langar að ná af mér 8 kílóum og ætla mér að losna við þau! Ætla að fara á danska kúrinn, DDV, til að ná því markmiði og venja mig við hollara og skynsamlegra mataræði. Á þessu bloggi mun ég segja frá hvernig mér gengur og kannski miðla einhverjum heilræðum, ef ég luma á þeim...endilega sýnið mér stuðning þó þetta séu ekki mjög mörg kíló hjá mér...

Viljinn er allt sem þarf, ekki satt?!